Fara í efni
← Til baka í fræðslu

Lykilorð og reikningsöryggi

Lykilorðið er oft fyrsta varnarlínan. Ef einhver fær lykilorðið þitt getur hann opnað tölvupóst, samfélagsmiðla og stundum banka — sérstaklega ef þú notar sama lykilorð á mörgum síðum.

Algeng mistök

  • Sama lykilorð notað á Discord, tölvupósti og öðrum síðum.
  • Stutt lykilorð eða orð úr orðabókinni (t.d. „Ísland2024“).
  • Lykilorð vistað í skjali á tölvunni eða sent í skilaboðum.
  • Nota raunverulegt nafn, fæðingardag eða gæludýrsnafn.

Góð venja

  • Notaðu lang lykilorð eða setningu — helst 16+ stafir.
  • Notaðu lykilorðageymslu (t.d. Bitwarden, 1Password) svo þú þurfir ekki að muna öll.
  • Breyttu lykilorði strax ef þú grunar leka eða ef þjónusta tilkynnir um öryggisbrot.
  • Kveiktu á tvíþættri auðkenningu þar sem hægt er.

Prófaðu verkfærið okkar

Búðu til sterk lykilorð á öruggan hátt — ekkert fer á netþjón.

Opna lykilorðagerð

Viltu aðeins meiri hjálp við að passa upp á serverinn?

Verndarinn er íslenskur Discord-bot fyrir íslensk samfélög. Hann hjálpar stjórnendum að fylgjast með því sem gerist á servernum og bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Allt sem þú þarft til að byrja er kostnaðarlaust.