Gríptu inn í fyrr.
Þekkt svikamynstur, grunsamlegir hlekkir og endurtekin skilaboð. Sjálfvirk umsjón bregst við þegar skilyrði eru uppfyllt.
ÍSLENSK VÖRN FYRIR DISCORD
Verndarinn hjálpar þér að greina svikahlekki, bregðast við ruslskilaboðum og halda utan um umsjón Discord-þjónsins.
KostnaðarlaustEngin Administrator-réttindi
Hlekkurinn í þessu dæmi passar við svikamynstur. Skilaboðin eru fjarlægð og atvikið skráð.
Viðbrögð ráðast af stillingum og heimildum. Sjálfvirk greining finnur ekki allt.
02 / YFIRSÝN SEM SKIPTIR MÁLI
Þegar eitthvað gerist áttu að geta séð hvað var gert og hvers vegna. Umsjónaratvik birtast í stjórnborðinu og valinni loggrás.
Opna stjórnborðPHISHING_LINKS
03 / TRAUST Á SKÝRUM FORSENDUM
Þú átt að vita hvaða aðgang þú veitir og hvað verður um gögnin.
Traust og öryggiBoðshlekkurinn biður ekki um Administrator-réttindi. Aðgerðir takmarkast af heimildum botsins og röð hlutverka.
Discord-auðkenni, stillingar og umsjónaratvik eru vistuð fyrir virkni þjónustunnar. Persónuupplýsingar eru ekki seldar.
Sjálfvirk umsjón metur skilaboð í vinnsluminni. Hún byggir ekki upp heildarsafn samtala. Nánari vinnsla og varðveisla eru útskýrð í stefnunni.
04 / ÞEKKING ER LÍKA VÖRN
Það er auðvelt að láta falska Discord-síðu líta sannfærandi út. Hér eru nokkur atriði sem þú ættir alltaf að skoða áður en þú skráir þig inn.
Lesa leiðbeiningarÞað sem þú ættir að gera fyrst ef þú heldur að einhver annar hafi komist inn á reikninginn þinn.
Lesa leiðbeiningarAdministrator er ekki eina permissionið sem getur valdið veseni.
Lesa leiðbeiningarJá. Verndarinn er kostnaðarlaus og hefur ekkert premium-þrep. Boðshlekkurinn biður ekki um Administrator-réttindi.
Eigandi og stjórnendur með viðeigandi Discord-heimildir. Þið kveikið á sjálfvirkri umsjón, veljið orðasíur, þröskulda, loggrás og undanþágur. Verndarinn framkvæmir aðeins það sem þið hafið leyft.
Ef sjálfvirk umsjón er virk les hann skilaboðatexta — það krefst Message Content Intent, ekki aðeins Lesa skilaboðasögu. Hann byggir ekki upp safn af öllum skilaboðum. Atvikaskrár orðasía geyma auðkenni og heiti reglu — ekki heilan texta.
Nánar um persónuverndNei. Sjálfvirk greining er hjálpartæki. Hún getur misst af hættu og brugðist við einhverju sem síðar reynist saklaust. Mannleg umsjón skiptir áfram máli.
Opnaðu boðshlekkinn, veldu server og veittu réttindin sem Discord sýnir. Síðan opnar þú stjórnborðið með Discord-innskráningu og stillir umsjónina.
Kostnaðarlaust. Ekkert premium.