Fara í efni
← Til baka í fræðslu

Hvaða Discord permissions ættir þú að passa sérstaklega upp á?

Administrator er ekki eina permissionið sem getur valdið veseni.

Mörg vandamál byrja ekki á því að einhver fái Administrator. Þau byrja á því að of mörgum er treyst, eða að bot fái réttindi sem hann þarf ekki.

Réttindi sem eru hættuleg ein og sér

  • Administrator — getur nánast allt.
  • Manage Roles — getur hækkað sig eða aðra.
  • Manage Webhooks — getur sent skilaboð sem líta út eins og þau komi frá servernum.
  • Mention @everyone og @here — fullkomið fyrir raid og spam.
  • Ban Members og Kick Members — auðvelt að tæma serverinn.
  • Manage Server — getur breytt nafni, ív og öðru sem skiptir máli.

Einföld regla

Gefðu fólki og bottum aðeins það sem þau þurfa. Ef einhver á að sjá um #almennt, þarf hann ekki að geta bannað fólk eða breytt roles.

Góð venja

  • Haltu Administrator hjá fáum, treystum aðilum.
  • Skoðaðu Roles af og til — ekki bara þegar eitthvað klikkar.
  • Gefðu bottum ekki Administrator „bara til að þetta virki“.
  • Læstu @everyone svo venjulegir meðlimir geti ekki stjórnað rásum eða hengt webhooks.

Viltu aðeins meiri hjálp við að passa upp á serverinn?

Verndarinn er íslenskur Discord-bot fyrir íslensk samfélög. Hann hjálpar stjórnendum að fylgjast með því sem gerist á servernum og bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Allt sem þú þarft til að byrja er kostnaðarlaust.