Fara í efni
← Til baka í fræðslu

Á ég að treysta þessum Discord bot?

Það sem gott er að athuga áður en þú gefur nýjum bot aðgang að servernum þínum.

Bots geta verið mjög gagnlegir. Þeir geta líka lesið skilaboð, sent spam, hent fólki út eða opnað bakdyr ef þeir fá of mikil réttindi.

Spurðu þig að þessu fyrst

Hver gerði bottinn? Er þetta þekkt nafn, eða einhver sem sendi þér hlekk í DM? Hvaða permissions biður hann um? Þarf hann virkilega Administrator? Geturðu lesið um hann einhvers staðar annars staðar en í einni auglýsingu?

Haltu að þér höndum

  • Bot sem kemur í DM og biður um að vera bætt við.
  • Bot sem krefst Administrator án skýringar.
  • Bot sem enginn á servernum þekkir, en „allir eru að nota“.

Góð venja

  • Bættu bottum aðeins við af opinberri síðu eða þekktri invite-slóð.
  • Gefðu minnstu mögulegu réttindi.
  • Farðu yfir Integrations af og til og fjarlægðu það sem enginn notar.
  • Ef bot byrjar að haga sér undarlega, kick-aðu hann fyrst og spyrðu svo.

Viltu aðeins meiri hjálp við að passa upp á serverinn?

Verndarinn er íslenskur Discord-bot fyrir íslensk samfélög. Hann hjálpar stjórnendum að fylgjast með því sem gerist á servernum og bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Allt sem þú þarft til að byrja er kostnaðarlaust.